|
Sunnudagur, 14 Mars 2010 20:28 |
|
Í Handverks- og hússtjórnarskólanum voru haldnir svokallaðir "opnir dagar" í 9. kennsluviku. Þá var hin hefðbundna kennsla brotin upp og í boði voru ákveðin verkefni í bæði matreiðslu og handavinnu, s.s. konfektgerð, útsaumur og svuntugerð, fiskflökun, hamborgaraveisla, úrbeining á kjöti og kjötfyllingar, almennur fatasaumur og prjón. Einn daginn var svo farið í vettvangsferð um héraðið. Byrjað var á að fara með rútu í Egilsstaði þar sem við heimsóttum Minjasafnið á Egilsstöðum og skoðuðum þar marga skemmtilega muni sem margir tengdust Hallormsstað og jafnvel skólanum. Svo var farið í sund, í hádegisverð á Gistihúsin á Egilsstöðum, tekinn rúntur um Fljótsdalinn með viðkomu á Skriðuklaustri og í stöðvarhúsi Fljótsdalsstöðvar. Skemmtilegur og vel heppnaður dagur það.

Fljótlega má finna myndir frá "opnum dögum" undir stikunni Myndir og Vorönn 2010
|