Hússtjórnarskólinn

Umsóknarfrestur fyrir haustönn 2010 er 20. júní.

Veitingatækni

Kennarar: Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir og Þráinn Lárusson

Veitingatækni - VÞS 106

Þjálfun í fjölbreyttari og viðameiri matreiðslu. Kennd er matseðlagerð, gerð innkaupaáætlana ásamt áætlunum um vinnutilhögun og verkaskiptingu. Kennd er ítarlegri meðferð hráefnis og kunna skil á hráefni. Kennd notkun innra eftirlits (GÁMES).

Að loknu námi í þessum áföngum á nemandinn að geta ráðið við fjölbreytta og töluvert viðamikla matargerð. Hann á að geta sett saman matseðla fyrir mismunandi tækifæri. Haft góða hráefnisþekkingu ásamt haldgóðri þekkingu á meðferð hráefnis og innra eftirlitskerfi (GÁMES). Nemandinn lærir að gera innkaupaáætlanir og áætlanir um vinnutilhögum og verkaskiptingu.

Veitingatækni - VÞS 206

Veitingatækni VEB 241

Nemendur læra aðferðafræði sem tengist verklegri matreiðslu. Kennd er vörufræði, matseðlagerð og gerð innkaupaáætlana.Nemendur öðlast grunnþekkingu á hráefni og viðurkenndum matreiðsluaðferðum, ásamt þjálfun í að setja saman matseðla. Nemendur gera innkaupaáætlanir og halda verkefnamöppu. Nemendur útbúa þriggja rétta matseðil á þremur tungumálum og skila til kennara um miðbik annar og síðan fimm rétta matseðil sem þeir skila í lok annar.

-

Sýningar og viðburðir

Engir viðburðir skráðir
Skoða dagatal
Bæta inn viðburði

Á döfinni

Engir viðburðir skráðir
Skoða dagatal
Bæta inn viðburði

Þú ert hér: Skólinn Námið Veitingatækni