Hallormsstaðaskógur er stærsti skógur Íslands. Þar er hægt að njóta einstakrar náttúrufegurðar og útivistar, auk þess að kynnast fjölmörgum trjátegundum, sumum sjaldséðum á Íslandi.
Í Hallormsstaðaskógi er eitt stærsta safn trjátegunda á norðlægum slóðum. Í skóginum er einnig rekin stór skógræktarstöð á vegum Skógræktar ríkisins.