Hússtjórnarskólinn

Haustönn 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Skólasetning haustannar 2009 er þriðjudaginn 25. ágúst kl. 18.

Nemendur skulu vera mættir vel fyrir þann tíma og jafnvel búnir að koma sér fyrir á herbergjum fyrir skólasetningu. Kynningar á námsefni, áföngum, skólareglum og fleira fer fram við skólasetningu, sem endar svo á sameiginlegri máltíð nemenda og kennara sem kennarar skólans sjá um þennan fyrsta dag.

Á miðvikudag er afhending námsgagna og fleira, kynningar á valáföngum fara fram og nemendur nýta tímann til að skoða sig um og kynnast.

Fimmtudagurinn er tekinn í berja- og sveppatínslu; Rifsber, bláber og lerkisveppir - og unnið úr afurðunum.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá föstudaginn 28. ágúst.

Sláturtíðin hafðist hjá hóp B þriðjudaginn 6. október. Þá var skellt í hið alíslenska slátur; blóðmör og lifrapylsu, ásamt færeyskri útgáfu af blóðmör - sem okkur fannst minna okkur á piparkökur... jólin!  Það var algjör hátíð í hádeginu og mikið borðað :)  Eftir viku er svo komið að A hóp í sláturgerðina.

Þriðjudaginn 6. október koma til okkar fyrirlesarar frá Háskólanum og halda fyrirlestur um fæðubótarefni. Fyrirlesturinn er í tengslum við næringarfræði og stendur frá kl. 14:30 - 15:30

Mánudaginn 12. október kemur svo til okkar Signý Ormarsdóttir, Menningarfulltrúi og fatahönnuður á Egilsstöðum, en hún heldur fyrirlestur um fatastíl, framkomu og tísku. Fyrirlesturinn er hluti af lífsleikni og hefst kl. 20:00 og stendur eitthvað fram eftir kvöldi.

Haustfríið
er í lok viku 42, þ.e.a.s. kennslu lýkur á hádegi fimmtudaginn 15. október og hefst að nýju mánudaginn 19. okt. samkv. stundaskrá.

Fimmtudaginn 19. nóvember verður opnunarteiti nýrrar kyndistöðvar á Hallormsstað... og verða það nemendur hússtjórnarskólans sem sjá um veitingarnar.

Miðvikudaginn 25. nóvember kemur stór hópur kvenna í heimsókn til okkar. Þetta eru TAK-konur (tengslanet austfirskra kvenna), sem koma og skoða skólann og fleira hér á Hallormsstað.

Fimmtudaginn 26. nóv höldum við svo litlu jólin.  Það má búast við að hlaðborðið svigni af gómsætum jólakræsingum... Stjórn skólans fær boð! 

Síðasta kennsluvika fyrir próf er svo vika 49 - eða dagarnir 30. nóv til 4. des.

Prófin verða dagana 5. til 11. des og strax eftir það hefst undirbúningur sýningar, sem verður sunnudaginn 13. desember.

Skólaslit fara fram fimmtudaginn 17. desember kl. 12

 
Þú ert hér: Vorönn / Haustönn Haustönn 2009