Hússtjórnarskólinn

Vorönn 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Vorönn 2010

Skoða sem PDF skjal

Prenta út

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Skólasetning vorannar 2010 var miðvikudaginn 6.  janúar. Nemendur þessa önnina eru 22 talsins, og er skólastarfið komið í fullan gang.

Vetrarfrí skólans er fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. febrúar.

Opin vika: dagana 8. - 12. mars höfðu nemendur úr öðru að velja en hinu hefðbundna skólastarfi. Í boði var m.a. konfektgerðarnámskeið, svuntugerð og útsaumur, prjón, hamborgaraveisla, göngutúrar, að vinna úr hreindýraskinni ásamt því að farin var vettvangsferð um Héraðið þar sem farið var í sund, heimsókn í Safnahúsið á Egilsstöðum, hádegisverð á Gistiheimilinu Egilsstöðum, skoðað sig um á Skriðuklaustri og endað svo á að skoða Fljótsdalsstöð sem tengd er Kárahnjúkavirkjun.

Páskafríið hófst eftir kennslu föstudaginn 26. mars og kennsla hófst að nýju eftir páskafrí fimmtudaginn 8. apríl.

Fimmtudaginn 22. apríl: sumardagurinn fyrsti, gefið var frí í skólanum þann daginn.

Prófin hófust mánudaginn 3. maí  og standa fram til mánudagsins 10. maí

Vorsýning skólans er haldin á uppstigningardag, fimmtudaginn 13. maí og stendur frá kl. 14 - 17. Þá munu nemendur skólans sýna afraksturs vetursins og verða þar kaffiveitingar til sölu.

Skólaslit verða miðvikudaginn 19. maí.







*réttur til breytinga áskilinn

 
Þú ert hér: Vorönn / Haustönn Vorönn 2010