|

Skólaslit verða miðvikudaginn 20. maí. Dagurinn byrjar með morgunverði kl. 8 og kl. 8:30 hefjast herbergjaþrifin. Kl. 12 er hádegismatur sem kennarar sjá um og eftir matinn fara sjálf skólaslitin fram. Áætlað er að allir verði farnir úr húsinu kl. 14.
Vettvangsferð vorannar: Vettvangsferðin þessa önnina verður farin þriðjudaginn 19. maí kl. 15. Farið verður á Reyðarfjörð þar sem við skoðum mötuneytið í Álverinu. Eftir það verður haldið til Egilsstaða og á fatahönnunarsýningu í Sláturhúsinu þar sem Katrín Jóhannesdóttir er með útskriftarsýningu sína. Við endum svo ferðina á Egilsstaðabýlinu, skoðum Gistiheimilið og borðum kvöldmat.
Vorsýning skólans var haldin sunnudaginn 17. maí. Að vanda var afrakstur vetrarins til sýnis; Fatnaður, myndlist, listmunir, prjón, hekl og útsaumur og að sjálfsögðu var svo kaffisala á staðnum að hætti nemenda. Aðsókn var góð á sýninguna og komu meðal annars 20 ára útskriftarnemar skólans.
Rotary-fundur í Hússtjórnarskólanum. Rotaryklúbburinn á Egilsstöðum kom til okkar þriðjudaginn 28. apríl og hélt fund þar sem nemendur Hússtjórnarskólans sáu um veitingarnar. Nemendur stóðu sig að sjálfsögðu með stakri prýði við undirbúning, matseld og þjónustu. Við lok borðhaldsins fengu gestirnir óvænt skemmtiatriði hjá nemendum, þegar söngdívurnar okkar endurtóku lagið "Þráinn" sem þær sungu í söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri fyrr í vor.
Söngkeppni framhaldsskólanna var haldin á Akureyri laugardaginn 18. apríl og að sjálfsögðu átti Hússtjórnarskólinn glæsilega þátttakendur í keppninni. Stelpurnar voru glæsilegar og mættu galvaskar með frumsaminn texta um daglega lífið í Húsó 
Páskafríið okkar hefst eftir kennslu föstudaginn 3. apríl. Mæting er aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 15. apríl... og kennsla hefst á ný þann 16.
Lífsleikni: Lífsleiknin er að komast í fullan gang. Mánudaginn 23. mars kl. 16 kemur til okkar prestur, sr. Þorgeir, og ræðir um sorg og sorgarviðbrögð. Þetta sama kvöld, kl. 19:30 kemur fatahönnuðurinn Signý Ormarsdóttir og ræðir um tísku og allt henni tilheyrandi. Hvernig við ættum að klæða okkur samkvæmt vaxtarlagi, erum við "sumar, vetur vor eða haust" og fleira í þeim dúr. Þriðjudaginn 31. mars kl. 16 verður fyrirlestur á vegum umferðarfulltrúa. (af þessum sökum færist útsaumstíminn sem átti að vera þennan dag yfir á mánudaginn 30. mars)
Vetrarfrí: Vetrarfrí bætist framan við helgi, þ.e. frí fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. febrúar. Sjáumst endurnærð mánudaginn 2. mars :)
Skólasetning vorannar: var þann 6. janúar og hófst kennsla samkvæmt stundaskrá 8. janúar. Það er í nógu að snúast hjá nemendum, við matargerð, þrif, saumaskap, prjón, myndlist, listmunagerð svo við tölum nú ekki um þetta bóklega; næringarfræði, textílfræði, bókleg hreinlætisfræði og bókleg veitingatækni... |