|
Skólareglur Nemendur bera ábyrgð á veru sinni í skólanum og námsframvindu. Þeim ber að umgangast skólahúsið, hvern annan og starfslið skólans af virðingu. Verði nemandi valdur af skemmdarverki ber honum að greiða allan kostnað af því. • Skyldumæting er í morgunverð og hádegisverð. • Kvöldútivist er: Virka daga til kl. 23.00 Föstudaga til kl. 24.00 Laugardaga til kl. 24.00 Sunnudaga til kl. 23.00 • Ekki er heimilt að koma með gesti í skólann nema með leyfi umsjónarmanns, næturgisting annarra en nemenda er bönnuð. Gestum ber að fara út úr húsinu þegar kvöldútivist lýkur. • Nemendum undir 18 ára er óheimilt að dvelja utan skólans á tímanum frá kl. 23.00 - 08.00 virka daga og 24.00 - 09.00 föstudaga og laugardaga nema með leyfi og vitund forráðamanna og skólayfirvalda. • Notkun og geymsla áfengis og hvers konar vímugjafa er stranglega bönnuð í skólanum. Þurfi að hafa afskipti af nemendum vegna neyslu áfengis eða annarra vímugjafa verður hann að víkja af vistinni. • Skv. landslögum eru reykingar með öllu óheimilar í húsnæði og á lóðum framhaldsskóla. • Ekki er leyfilegt að vera með reykelsi eða kerti á herbergjum vegna eldhættu. • Virka daga á að vera komin á ró í húsinu kl. 23.00. Um helgar virði nemendur rétt þeirra sem vilja svefnfrið eftir kl. 24.00. • Þurfi skólameistari að áminna nemenda tvisvar vegna brota á reglum þessum verður hann að víkja af vistinni. Áminningarnar skulu vera skriflegar. Reglur um helgar Nemendur sem ekki hafa náð 18 ára aldri verða að fá skriflegt leyfi frá forráðamanni til að dvelja utan skólans utan útivistartíma. Slíkt leyfi þarf að berast skólayfirvöldum ekki síðar en 24 tímum áður en leyfið á að taka gildi. Nemendur eiga að skrá sig í leyfi og verða að gefa upp símanúmer þar sem hægt er að ná í þá. Mötuneyti um helgar kl. 11-12.00 Léttur hádegismorgunverður. kl. 15.30 Kaffi. kl. 18.30 Kvöldverður. Reglur um skólasókn Mætingarskylda er 100% þ.e. nemendur skulu sækja allar kennslustundir og mæta stundvíslega til kennslu. Langvarandi veikindi skal staðfesta með læknisvottorði. Skólagjöld: Nemanda með skólagjöld í vanskilum er ekki heimild próftaka. Frávik frá skólasókn: Þegar nemandi hefur tapað sem svarar til 15 % af heildarkennslu í áfanganum missir hann rétt til áframhaldandi setu í áfanganum sem og próftökurétt. Viðurlög við brotum á skóla og skólasóknarreglum: Við brot á skólareglum skal skólameistari eða aðstoðarskólameistari áminna nemanda skriflega. Þurfi að áminna nemenda tvisvar vegna brota á reglum þessum og/eða vegna slælegra mætinga, þarf hann að víkja af heimavist og þar með úr skólanum. Nemendum er gefin skólasóknareinkunn.
|