|
Skólasetning haustannar 2010 |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 19 Ágúst 2010 15:14 |
Þá líður að upphafi haustannar 2010. 24 Nýir nemendur mæta til okkar þriðjudaginn 24. ágúst og skulu vera mættir kl. 16 þann dag. Skólasetningin fer fram í "Höll" skólans kl. 18. Að skólasetningu lokinni bjóða kennarar skólans upp á kvöldverð.
Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk skólans |
|
Þriðjudagur, 18 Maí 2010 14:57 |
Miðvikudaginn 19. maí verður þessari vorönn 2010 slitið. Önnin hefur vægast sagt verið fljót að líða, enda alltaf nóg að gera ;)

Annars gekk sýningin okkar þann 13. maí sl. ofsalega vel og húsið fylltist hreinlega af góðum gestum. Algjört aðsóknarmet var á sýninguna og viljum við bara þakka öllum þeim sem létu sjá sig :)
Svo viljum við minna á að umsóknarfrestur fyrir haustönn 2010 er til 20. júní |
|
Fimmtudagur, 13 Maí 2010 11:31 |

Í dag, uppstigningardag er vorsýning skólans. Sýningin stendur frá kl. 14 - 17
Munið eftir kaffihlaðborðinu :)
- Verið velkomin -
|
|
Miðvikudagur, 05 Maí 2010 11:29 |

Vorprófin eru gengin í garð í Handverks- og Hússtjórnarskólanum... dagskráin er stíf og frekar erfitt að halda sig inni við lesturinn í þessari rjómablíðu sem fylgdi prófunum hér á Hallormsstað!
En við viljum líka minna ykkur á Vorsýningu skólans sem haldin verður fimmtudaginn 13. maí (uppstigningardag) kl. 14:00 - 17:00
Verið hjartanlega velkomin
|
|
Miðvikudagur, 21 Apríl 2010 11:52 |
Í dag er síðasti vetrardagur og það þýðir lítið annað en að nú sé þessi önn farin að styttast heldur betur í annan endann! Framundan eru generalprufur í matreiðslu og svo að klára síðustu handtökin í textílgreinum. Við viljum líka benda á vorsýningu skólans sem verður á Uppstigningardag, fimmtudaginn 13. maí kl. 14 - 17... og vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta :)
|
|
Föstudagur, 26 Mars 2010 09:17 |
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað óskar nemendum sínum gleðilegra páska, með von um notalegt frí :) Við sjáumst svo aftur miðvikudaginn 7. apríl... en skólastarf hefst á ný fimmtudaginn 8. apríl.

Starfsfólk skólans
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 4 |